Legalisering

Við sérhæfum okkur í löggiltum skjalaþýðingum

Sérhæfð þýðingastofa

Skjalaþýðing er þýðingastofa sem sérhæfir sig í löggiltum skjalaþýðingum, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki, sem er fyrir mörgum óþekkt ferli. Löggilt þýðing er framkvæmd af löggiltum skjalaþýðanda sem fengið hefur löggildingarréttindi frá sýslumanni. Löggilt skjalaþýðing er stimpluð og undirrituð af þýðanda sem þar með staðfestir að þýðingin er endanleg og jafngild frumtexta. Lestu frekari upplýsingar um ferlið og um tilboð í löggilta þýðingu á skjali þínu hér

Skjöl sem venjulega þurfa löggilta þýðingu

Við aðstoðum við þýðingu á flestum tegundum skjala sem yfirvöld hafa gefið út. Skjöl sem algengt er að þurfi löggilta þýðingu eru skráningarvottorð, samþykktir, umboð, samningar, skattagögn, erfðaskjöl, eignaréttaryfirlýsingar, læknisvottorð, dánarvottorð, málsskjöl, ættleiðingarskjöl, hjúskaparvottorð, skilnaðarvottorð, einkunnarskjöl, prófskírteini, atvinnuvottorð, námskeiðsvottorð, fæðingarvottorð, útdráttur úr sakaskrá o.s.frv. Þó svo að skjalið þitt sé ekki að finna í þessari upptalningu þá getum við að öllum líkindum samt aðstoðað þig! 

Á hvaða tungumál þýðum við?

Til að hægt sé að löggilda skjal á Íslandi verður íslenska að vera hluti af tungumálasamsetningunni. Þannig verður skjalið annað hvort að vera þýtt af eða yfir á íslensku. Við höfum á að skipa alþjóðlegt netsamstarf og þýðum af eða yfir á flest tungumál. Algengustu tungumálin sem við þýðum úr og yfir á eru enska, spænska, pólska, danska og franska. En við þýðum einnig á mörg önnur tungumál. Hafðu þess vegna samband við okkur ef þú vilt vita hvort við getum þýtt þitt skjal.

Það getur tekið allt að þremur dögum að fá tilboð

Lestu nánar um ástæðu þess hér. Við aðstoðum gegnum tölvupóst, síma og á netspjalli á virkum dögum frá kl. 8.00 til 17.00.

Afhending        

Við póstsendum allar löggiltar skjalaþýðingar á það heimilisfang sem óskað er eftir, hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Einnig færð þú þýðinguna á rafrænu formi ef þú óskar þess. Almennar og sértækar þýðingar eru afhentar einungis á rafrænu formi.

Hringdu í 644 0450
Aðstoð gegnum síma, tölvupóst og netspjall alla virka daga frá 8.00 til 17.00
Hvað er löggilt þýðing?
Löggilt þýðing er framkvæmd af löggiltum skjalaþýðanda sem fengið hefur löggildingarréttindi frá sýslumanni. Löggilt skjalaþýðing er stimpluð og undirrituð af þýðanda sem þar með staðfestir að þýðingin er endanleg og jafngild frumtexta.
Hafðu samband og fáðu verðtilboð ásamt afhendingartíma
Við sendum þér löggiltar þýðingar heim að dyrum
Einstaklingar geta greitt með greiðslukorti. Fyrirtæki og stofnanir fá sendan reikning.
Við bjóðum upp á hagstæð verð
Við önnumst öll þín gögn í fullum trúnaði
Við póstsendum löggiltar þýðingar

Hver erum við?

Skjalaþýðing er þýðingastofa sem sérhæfir sig í löggiltum þýðingum, bæði fyrir einkaaðila og viðskiptavini úr atvinnulífinu. Skjalaþýðing á í samstarfi við marga þeirra löggiltu þýðenda sem hlotið hafa staðfestingu hjá sýslumanni, fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.
Lestu meira um okkur

Fáðu sendar ábendingar, ráð og tilboð

Skráðu þig á tölvupóstlistann til að fá frekari ábendingar og innsýn í starf okkar

Skjalaþýðing.is
Suðurhraun 10
210 Garðabær
Ísland
644 0450
560123-1670