Löggiltar og almennar þýskar þýðingar.
Þýðendur okkar eru til þjónustu reiðubúnir.
Við bjóðum löggiltar þýskar þýðingar. Sendu skjalið til okkar til að fá frítt tilboð í löggilta þýðingu hjá þýskum þýðanda.
Ef senda á texta sem þú ert með til opinberrar stofnunar, er mjög líklegt að gerð sé krafa um löggilta þýðingu. Löggilt þýðing hefur verið stimpluð og undirrituð af löggiltum þýðanda, sem er viðurkenndur af sýslumanni. Í örfáum tilvikum þarf löggilt þýðing einnig að hafa fengið staðfestingu hjá utanríkisráðuneytinu. Við mælum með því að þú spyrjir þá stofnun sem er viðtakandi skjala þinna nákvæmlega hvaða kröfur eru gerðar um þýðinguna.
Þýskir þýðendur
Ef þú þarft að fá opinberlega löggilta þýðingu á eða af þýsku verður þýðingin að vera framkvæmd af þýðanda, sem sýslumaður hefur veitt löggildingu, með sérstakri undirritun sinni og stimpli. Hverjar svo sem óskir þínar eru varðandi þýðingu á skjali, ráðleggjum við þér að hafa samband við okkur svo við getum leiðbeint þér í gegnum ferlið.
Verð – hvað kostar þýsk þýðing?
Við biðjum þig fyrst um að senda okkur skjalið sem á að þýða gegnum heimasíðu okkar til skoðunar. Þegar við höfum tekið við skjalinu sem á að þýða, hvort sem er af eða yfir á þýsku, munum við gera þér tilboð með verði og afhendingartíma. Þú getur sent skjalið með því að skanna það og senda til okkar gegnum heimasíðu okkar.
Trúnaður – hver getur séð skjalið þitt?
Þegar þú sendir okkur ósk um tilboð er textinn aðeins lesinn af verkefnisstjóra okkar og viðkomandi þýðanda. Við erum bundin þagnarskyldu og skjal þitt er í öruggum höndum okkar. Ef ekki er hafist handa við þýðinguna, verður skjalinu eytt úr kerfum okkar.
Viðskiptaþýðingar
Skjalaþýðing.is annast þýðingar á mörgum mismunandi tegundum texta fyrir viðskiptavini úr viðskiptalífinu. Viðskiptavinir okkar koma úr flestum geirum atvinnulífsins og því höfum við á að skipa þýðendum með þekkingu á viðkomandi greinum. Þegar við tökum að okkur viðskiptaþýðingar hefur þekking á atvinnulífinu úrslitaáhrif um hvort þýðingin nýtist að fullu. Við höfum þess vegna innan okkar raða sérfræðinga um allan heim og sjáum einnig til þess að þú fáir besta verðið, þannig að þú fáir sem mest fyrir verðið sem þú greiðir. Ef þú ert með texta sem þú vilt láta þýða, mælum við með því að þú hafir samband við okkur með því að nota samskiptaforritið á heimasíðu okkar.
Afhending – fáðu þýsku þýðinguna þína rafrænt og með pósti
Við póstsendum allar þýðingar á það heimilisfang sem óskað er eftir, hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Einnig færð þú þýðinguna á rafrænu formi ef þú óskar þess.
Aðstoð gegnum síma, tölvupóst og netspjall alla virka daga frá 8.00 til 17.00
Þú getur haft samband við okkur alla virka daga. Afgreiðslutími okkar er frá kl. 8.00 til 17.00.
Greiðslukort eða reikningsviðskipti
Ef þú ákveður að fá aðstoð við þýska þýðingu gegnum Skjalaþýðing.is getur þú sem einstaklingur greitt með greiðslukorti á meðan fyrirtæki fá sendan reikning.
Hafðu samband í síma +354 6440450, í tölvupóstfangið [email protected] eða með netspjalli. Við hlökkum til að heyra frá þér.