Löggiltar og almennar enskar þýðingar.
Þýðendur okkar eru til þjónustu reiðubúnir.
Þarft þú enska þýðingu? Hjá Skjalaþýðing.is eru enskir þýðendur sem geta aðstoðað þig
Ef þú þarft að fá þýddan texta á eða af ensku, sem á að nota á vegum opinberrar stofnunar, er alltaf krafa um að skjalaþýðandi, sem hlotið hefur löggildingu hjá sýslumanni, annist og stimpli þýðinguna. Í sumum tilvikum þarf löggilt þýðing einnig að hafa fengið staðfestingu hjá utanríkisráðuneytinu. Við mælum með því að þú spyrjir þá stofnun sem er viðtakandi skjala þinna nákvæmlega hvaða kröfur eru gerðar um þýðinguna.
Enskar þýðingar
Ef þú þarft að fá opinberlega löggilta þýðingu á eða af ensku verður þýðingin að vera framkvæmd af þýðanda, sem sýslumaður hefur veitt löggildingu, með sérstakri undirritun sinni og stimpli. Hverjar svo sem kröfurnar eru varðandi skjal þitt ráðleggjum við að þú hafir samband við okkur svo við getum leiðbeint þér gegnum ferlið.
Verð – hvað kostar ensk þýðing?
Við biðjum þig fyrst um að senda okkur skjalið sem á að þýða gegnum heimasíðu okkar til skoðunar. Þá munum við gera þér tilboð með verði og afhendingartíma. Þú getur sent skjalið með því að skanna það og sent til okkar gegnum heimasíðuna.
Trúnaður – hver getur séð skjalið þitt?
Þegar þú sendir okkur ósk um tilboð er textinn aðeins lesinn af verkefnisstjóra okkar og viðkomandi þýðanda. Skjalaþýðing.is heldur í heiðri trúnað og skjal þitt er í öruggum höndum okkar. Ef ekki er hafist handa við þýðinguna, verður skjalinu eytt úr kerfum okkar.
Viðskiptaþýðingar
Skjalaþýðing.is sér um þýðingar á mörgum mismunandi tegundum texta úr viðskiptalífinu. Viðskiptavinir okkar koma úr flestum geirum atvinnulífsins og því höfum við á að skipa þýðendum með þekkingu á viðkomandi greinum. Þegar við tökum að okkur viðskiptaþýðingar er þekking á atvinnulífinu afgerandi um hvort þýðingin nýtist að fullu. Við höfum þess vegna innan okkar raða sérfræðinga um allan heim og sjáum einnig til þess að þú fáir besta verðið, þannig að þú fáir sem mest fyrir það verð sem þú greiðir. Ef þú ert með texta sem þú vilt láta þýða, mælum við með því að þú hafir samband við okkur með því að nota samskiptaeyðublað okkar.
Afhending
Við sendum allar þýðingar með pósti á það heimilisfang sem óskað er, hvort sem er á Íslandi eða einhverju öðru landi. Einnig er möguleiki að fá þýðinguna senda rafrænt, ef þörf er á.
Hafðu samband
Aðstoð gegnum síma, tölvupóst og netspjall, alla virka daga frá 8.00 til 17.00
Greiðslukort eða reikningsviðskipti
Ef þú ákveður að fá aðstoð við löggilta þýðingu gegnum Skjalaþýðing.is getur þú sem einstaklingur greitt með greiðslukorti á meðan fyrirtæki og stofnanir fá sendan reikning.
Hafðu samband í síma +354 6440450, í tölvupóstfangið [email protected] eða með netspjalli. Við hlökkum til að heyra frá þér.