Hringdu í 644 0450
Lokað um helgar
Legalisering

Löggiltar og almennar íslenskar þýðingar. Þýðendur okkar eru til þjónustu reiðubúnir.

Trúnaðarmál

Skjalaþýðing heldur í heiðri trúnaði og skjal þitt er í öruggum höndum okkar.

Afhending

Við póstsendum allar löggiltar þýðingar á það heimilisfang sem óskað er eftir.

Greiðslukort eða reikningsviðskipti

Einstaklingar greiða fyrir fram hjá okkur. Fyrirtæki fá sendan reikning.

Við bjóðum upp á hagstæð verð

Við önnumst öll þín gögn í fullum trúnaði

Við póstsendum löggiltar þýðingar

Ferlið við löggilta þýðingu getur virst vera flókið svo hér að neðan er farið yfir það, skref fyrir skref.

Þarft þú íslenska þýðingu? Þýðendurnir okkar eru til þjónustu reiðubúnir

Þýðendur Skjalaþýðingar geta þýtt skjöl á íslensku yfir á flest heimsins tungumál, og einnig úr öðrum tungumálum yfir á íslensku. Allir þýðendur eru móðurmálsþýðendur og þú getur því treyst á rétt mál, sem og aðlögun textans að íslensku nútímamálfari.

Íslenskar löggiltar þýðingar

Ef þú þarft að nota skjalið þitt opinberlega er yfirleitt gerð krafa um löggilta skjalaþýðingu. Það þýðir að þýðandinn þarf að hafa hlotið löggildingu hjá sýslumanni, og getur því gert þýðinguna löggilta með stimpli og undirskrift sinni. Skjalaþýðing er með þónokkra íslenska löggilta þýðendur á skrá og getur því aðstoðað þig með löggilta þýðingu. Við mælum með því að þú hafir samband við móttakanda skjalsins og fáir það á hreint hvaða kröfur séu gerðar um þýðinguna, og þá getum við leiðbeint þér í gegnum ferlið.

Hvað kostar íslensk þýðing?

Við biðjum þig alltaf um að byrja á að senda okkur skjalið sem á að þýða. Þetta gerum við til að geta lagt mat á skjalið með þýðanda áður en við sendum þér tilboð með verði og afhendingartíma. Þú getur sent okkur skjalið með því að hlaða því upp í gegnum heimasíðuna okkar, eða sent okkur tölvupóst á [email protected]

Þýðingar fyrir viðskiptalífið

Skjalaþýðing hefur unnið við þýðingar á textum um allt milli himins og jarðar. Við þjónustum viðskiptavini í flestum greinum atvinnulífsins og úthlutum verkefnum til þýðenda með sérþekkingu á viðkomandi greinum. Þegar við tökum að okkur viðskiptaþýðingar er þekking á atvinnulífinu afgerandi um hvort þýðingin nýtist að fullu. Við erum þessvegna með sérfræðinga úti um allan heim á skrá. Við sjáum til þess að þú fáir hæfasta þýðandann og besta verðið, sama hvað textinn þinn fjallar um. Ef þú ert með texta sem þú vilt láta þýða mælum við með því að þú hafir samband við okkur í gegnum samskiptaformið sem hægt er að finna hér efst á síðunni.

Fáðu sendar ábendingar, ráð og tilboð

Trúnaður

Allar fyrirspurnir, samskipti og skjöl eru meðhöndluð í trúnaði. Aðeins þeir sem koma að verkinu hafa aðgang að skjalinu. Ef ekki er hafist handa við þýðinguna er skjalinu þínu eytt úr kerfinu okkar.

Afhending

Við afhendum allar þýðingar sem skannað eintak í gegnum tölvupóst. Ef um er að ræða löggilta þýðingu, eða ef óskað er eftir því, þá er þýðingin einnig send í bréfpósti á það heimilisfang sem þú gefur upp, hvort sem það er á Íslandi eða í öðru landi.

Hafðu samband

Þú getur haft samband við okkur í gegnum netspjall hér á heimasíðunni, með því að senda tölvupóst á [email protected], eða í síma 644-0450. Það er opið hjá okkur alla virka daga frá 8.00 til 17.00.

Greiðslukort eða reikningsviðskipti

Einstaklingar greiða fyrir þjónustu Skjalaþýðingar fyrirfram með greiðslukorti. Fyrirtæki og stofnanir fá sendan reikning.

Hver erum við?

Skjalaþýðing er þýðingastofa sem sérhæfir sig í löggiltum þýðingum, bæði fyrir einkaaðila og viðskiptavini úr atvinnulífinu. Skjalaþýðing á í samstarfi við marga þeirra löggiltu þýðenda sem hlotið hafa staðfestingu hjá sýslumanni, fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.

Skjalaþýðing.is
Kalkofnsvegur 2, 3. hæð
Hafnartorg, 101 Reykjavík
Ísland
644 0450
Kennitala: 560123-1670