Tilboðsbeiðni
Trúnaðarmál
Þegar þú sendir okkur beiðni um tilboð er textinn aðeins lesinn af verkefnisstjóra okkar og viðkomandi þýðanda. Skjalaþýðing.is heldur í heiðri trúnaði og skjal þitt er í öruggum höndum okkar. Ef ekki er hafist handa við þýðinguna, verður skjalinu eytt úr kerfum okkar.
Afhending
Við póstsendum allar löggiltar þýðingar á það heimilisfang sem óskað er eftir, hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Einnig færð þú þýðinguna á rafrænu formi. Almennar þýðingar eru afhentar einungis á rafrænu formi.
Greiðslukort eða reikningsviðskipti
Einstaklingar greiða fyrir fram hjá okkur í gegnum örugga greiðslugátt. Fyrirtæki og stofnanir fá sendan reikning að verki loknu.
Hafðu samband
Aðstoð í gegnum síma, tölvupóst og netspjall alla virka daga frá 8.00 til 17.00.