Hringdu í 644 0450
Lokað um helgar
Legalisering

Löggiltar og almennar rússneskar þýðingar. Þýðendur okkar eru til þjónustu reiðubúnir.

Trúnaðarmál

Skjalaþýðing heldur í heiðri trúnaði og skjal þitt er í öruggum höndum okkar.

Afhending

Við póstsendum allar löggiltar þýðingar á það heimilisfang sem óskað er eftir.

Greiðslukort eða reikningsviðskipti

Einstaklingar greiða fyrir fram hjá okkur. Fyrirtæki fá sendan reikning.

Við bjóðum upp á hagstæð verð

Við önnumst öll þín gögn í fullum trúnaði

Við póstsendum löggiltar þýðingar

Ferlið við löggilta þýðingu getur virst vera flókið svo hér að neðan er farið yfir það, skref fyrir skref.

Finndu rússneskan löggiltan þýðanda hjá Skjalaþýðing.is. Hér getur þú fengið rússneska þýðingu framkvæmda af rússneskum þýðanda, sem er viðurkenndur af sýslumanni.

Ef þú þarft að fá þýddan texta af eða yfir á rússnesku og sem á að nota á vegum opinberrar stofnunar, er næstum alltaf gerð krafa um að skjalið sé þýtt af löggiltum skjalaþýðanda, sem hlotið hefur löggildingu hjá sýslumanni, og að skjalið sé stimplað því til sönnunar. Í sumum tilvikum þarf löggilt þýðing einnig að hafa fengið staðfestingu hjá utanríkisráðuneytinu með s.k. apostille stimplun. Þetta á þó aðeins við um skjöl sem hafa verið lögbókandavottuð (notarius publicus) hjá sýslumanni.  Við mælum með því að þú spyrjir þá stofnun sem er viðtakandi skjala þinna nákvæmlega hvaða kröfur eru gerðar um þýðinguna.

Rússneskir þýðendur

Þarft þú á að halda löggiltri þýðingu af eða yfir á rússnesku? Þá þarft þú að fá rússneskan þýðanda til að þýða með sérundirritun og stimpli. Hafðu samband við okkur, þá getum við leiðbeint þér í gegnum ferlið.

Verð – hvað kostar rússnesk þýðing?  

Við biðjum þig fyrst um að senda okkur skjalið sem á að þýða gegnum heimasíðu okkar til skoðunar. Þegar við höfum tekið við skjalinu sem á að þýða, hvort sem er af eða yfir á rússnesku, munum við gera þér tilboð með verði og afhendingartíma. Þú getur sent skjalið með því að skanna það og hlaða upp í gegnum heimasíðuna.

Trúnaður – hver getur séð skjalið þitt?    

Þegar þú sendir okkur ósk um tilboð er textinn aðeins lesinn af verkefnisstjóra okkar og viðkomandi þýðanda. Við erum bundin þagnarskyldu og skjal þitt er í öruggum höndum okkar. Ef ekki er hafist handa við þýðinguna, verður skjalinu eytt úr kerfum okkar. 

Fáðu sendar ábendingar, ráð og tilboð

Þýðingar fyrir mismunandi starfsemi

Skjalaþýðing.is annast þýðingar á mörgum mismunandi tegundum texta fyrir viðskiptavini úr viðskiptalífinu. Við þjónustum viðskiptavini í flestum greinum atvinnulífsins og úthlutum verkefnum til þýðenda með þekkingu á viðkomandi greinum. Þegar við tökum að okkur viðskiptaþýðingar hefur þekking á atvinnulífinu úrslitaáhrif um hvort þýðingin nýtist að fullu. Við höfum þess vegna innan okkar raða sérfræðinga um allan heim og sjáum einnig til þess að þú fáir besta verðið, þannig að þú fáir sem mest fyrir verðið sem þú greiðir. Ef þú ert með texta sem þú vilt láta þýða, mælum við með því að þú hafir samband við okkur í gegnum samskiptaformið sem hægt er að finna hér efst á síðunni.

Afhending – fáðu rússnesku þýðinguna senda til þín    

Við póstsendum allar þýðingar á það heimilisfang sem óskað er, hvort sem er á  Íslandi eða erlendis. Þýðingin er auk þess send á rafrænu formi, sé þess óskað. 

Aðstoð gegnum síma, tölvupóst og netspjall alla virka daga frá 8.00 til 17.00

Hafðu samband í síma 6440-450, í tölvupóstfangið [email protected] eða með netspjalli. Við hlökkum til að heyra frá þér. Afgreiðslutími okkar er frá kl. 8.00 til 17.00 alla virka daga.

Greiðslukort eða reikningsviðskipti

Ef þú ákveður að fá aðstoð við rússneska þýðingu í gegnum Skjalaþýðing.is greiðir þú sem einstaklingur fyrir fram með greiðslukorti. Fyrirtæki og stofnanir fá sendan reikning.

Hver erum við?

Skjalaþýðing er þýðingastofa sem sérhæfir sig í löggiltum þýðingum, bæði fyrir einkaaðila og viðskiptavini úr atvinnulífinu. Skjalaþýðing á í samstarfi við marga þeirra löggiltu þýðenda sem hlotið hafa staðfestingu hjá sýslumanni, fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.

Skjalaþýðing.is
Kalkofnsvegur 2, 3. hæð
Hafnartorg, 101 Reykjavík
Ísland
644 0450
Kennitala: 560123-1670