Hringdu í 644 0450
Lokað um helgar
Legalisering

Löggiltar og almennar kínverskar þýðingar. Þýðendur okkar eru til þjónustu reiðubúnir.

Trúnaðarmál

Skjalaþýðing heldur í heiðri trúnaði og skjal þitt er í öruggum höndum okkar.

Afhending

Við póstsendum allar löggiltar þýðingar á það heimilisfang sem óskað er eftir.

Greiðslukort eða reikningsviðskipti

Einstaklingar greiða fyrir fram hjá okkur. Fyrirtæki fá sendan reikning.

Við bjóðum upp á hagstæð verð

Við önnumst öll þín gögn í fullum trúnaði

Við póstsendum löggiltar þýðingar

Ferlið við löggilta þýðingu getur virst vera flókið svo hér að neðan er farið yfir það, skref fyrir skref.

Ert þú með texta sem þarf að þýða af eða yfir á kínversku? Fáðu tilboð í löggilta þýðingu hjá kínverskum þýðanda, þér að kostnaðarlausu.

Ef þú þarft að fá þýddan texta af eða á kínversku, sem á að nota á vegum opinberrar stofnunar, eru miklar líkur á að gerð sé krafa um að skjalið sé þýtt af löggiltum skjalaþýðanda, sem hlotið hefur löggildingu hjá sýslumanni, og að skjalið sé stimplað því til sönnunar. Í sumum tilvikum þarf löggild þýðing einnig að hafa fengið staðfestingu hjá utanríkisráðuneytinu með s.k. apostille stimplun. Þetta á þó aðeins við um skjöl sem hafa verið lögbókandavottuð (notarius publicus) hjá sýslumanni.  Við mælum með því að þú spyrjir þá stofnun sem er viðtakandi skjala þinna nákvæmlega hvaða kröfur eru gerðar um þýðinguna.

Kínverskir þýðendur

Ef þú þarft á að halda löggiltri þýðingu af eða yfir á kínversku verður kínverskur þýðandi að þýða og merkja skjalið með sínum sérstaka stimpli og undirskrift. Hverjar svo sem óskir þínar eru varðandi þýðingu á skjali, ráðleggjum við þér að hafa samband við okkur svo við getum leiðbeint þér í gegnum ferlið.

Verð – hvað kostar kínversk þýðing?     

Við biðjum þig fyrst um að senda okkur skjalið sem á að þýða gegnum heimasíðu okkar til skoðunar. Þegar við höfum tekið við skjalinu sem á að þýða, hvort sem er af eða yfir á kínversku, munum við gera þér tilboð með verði og afhendingartíma. Þú getur sent skjalið með því að skanna og senda það með því að hlaða því upp gegnum heimasíðu okkar.

Trúnaður – hver getur séð skjalið þitt?       

Þegar þú sendir okkur ósk um tilboð er textinn aðeins lesinn af verkefnisstjóra okkar og viðkomandi þýðanda. Skjalaþýðing.is heldur í heiðri trúnað og skjal þitt er í öruggum höndum okkar. Ef ekki er hafist handa við þýðinguna, verður skjalinu eytt úr kerfum okkar. 

Fáðu sendar ábendingar, ráð og tilboð

Þýðingar fyrir fyrirtæki

Við önnumst þýðingar á mörgum mismunandi tegundum texta fyrir viðskiptavini úr viðskiptalífinu. Viðskiptavinir okkar koma úr flestum geirum atvinnulífsins og því höfum við á að skipa þýðendum með þekkingu á viðkomandi greinum. Þegar við tökum að okkur viðskiptaþýðingar hefur þekking á atvinnulífinu úrslitaáhrif um hvort þýðingin nýtist að fullu. Við höfum þess vegna innan okkar raða sérfræðinga um allan heim og sjáum einnig til þess að þú fáir besta verðið, þannig að þú fáir sem mest fyrir verðið sem þú greiðir. Ef þú ert með texta sem þú vilt láta þýða, mælum við með því að þú hafir samband við okkur með því að nota samskiptaeyðublaðið.

Afhent – færð þýðinguna rafrænt og með pósti            

Við póstsendum allar þýðingar á það heimilisfang sem óskað er eftir, hvort sem er á  Íslandi eða erlendis. Einnig er mögulegt að fá þýðinguna á rafrænu formi ef þess er óskað. 

Aðstoð gegnum síma, tölvupóst og netspjall alla virka daga frá 8.00 til 16.00        

Þú getur haft samband við okkur alla virka daga. Afgreiðslutími okkar er frá kl. 8.00 til 16.00.

Greiðslukort eða reikningsviðskipti

Ef þú ákveður að fá aðstoð við kínverska þýðingu gegnum Skjalaþýðing.is getur þú sem einstaklingur greitt með greiðslukorti á meðan fyrirtæki fá sendan reikning.

Hafðu samband í síma +354 6440450, í tölvupóstfangið [email protected] eða með netspjalli. Við hlökkum til að heyra frá þér.

Hver erum við?

Skjalaþýðing er þýðingastofa sem sérhæfir sig í löggiltum þýðingum, bæði fyrir einkaaðila og viðskiptavini úr atvinnulífinu. Skjalaþýðing á í samstarfi við marga þeirra löggiltu þýðenda sem hlotið hafa staðfestingu hjá sýslumanni, fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.

Skjalaþýðing.is
Kalkofnsvegur 2, 3. hæð
Hafnartorg, 101 Reykjavík
Ísland
644 0450
Kennitala: 560123-1670