Hringdu í 644 0450
Opið til kl. 17.00
Legalisering

Löggiltar og almennar franskar þýðingar. Þýðendur okkar eru til þjónustu reiðubúnir.

Trúnaðarmál

Skjalaþýðing heldur í heiðri trúnaði og skjal þitt er í öruggum höndum okkar.

Afhending

Við póstsendum allar löggiltar þýðingar á það heimilisfang sem óskað er eftir.

Greiðslukort eða reikningsviðskipti

Einstaklingar greiða fyrir fram hjá okkur. Fyrirtæki fá sendan reikning.

Við bjóðum upp á hagstæð verð

Við önnumst öll þín gögn í fullum trúnaði

Við póstsendum löggiltar þýðingar

Ferlið við löggilta þýðingu getur virst vera flókið svo hér að neðan er farið yfir það, skref fyrir skref.

Þarft þú franska þýðingu? Hjá okkur eru franskir þýðendur sem geta þýtt fyrir þig

Ef þú þarft að fá þýddan texta af eða yfir á frönsku, sem á að nota á vegum opinberrar stofnunar, er næstum alltaf gerð krafa um að skjalið sé þýtt af löggiltum skjalaþýðanda, sem hlotið hefur viðurkenningu sýslumanns, og að skjalið sé stimplað því til sönnunar. Í sumum tilvikum þarf hin löggilta þýðing einnig að hafa fengið staðfestingu hjá utanríkisráðuneytinu með s.k. apostille stimplun. Þetta á þó aðeins við um skjöl sem hafa verið lögbókandavottuð (notarius publicus) hjá sýslumanni. Við mælum með því að þú spyrjir þá stofnun sem er viðtakandi skjala þinna nákvæmlega hvaða kröfur eru gerðar um þýðinguna.

Franskir þýðendur

Ef þú þarft að fá opinberlega löggilta þýðingu á eða af frönsku verður þýðingin að vera framkvæmd af frönskuþýðanda, sem sýslumaður hefur veitt löggildingu, með sérstakri undirritun sinni og stimpli. Hverjar svo sem óskir þínar eru varðandi þýðingu á skjali, ráðleggjum við þér að hringja í okkur svo við getum leiðbeint þér í gegnum ferlið.

Verð – hvað kostar frönsk þýðing?  

Við biðjum þig fyrst um að senda okkur skjalið sem á að þýða gegnum heimasíðu okkar til skoðunar. Þá munum við gera þér tilboð með verði og afhendingartíma. Þú getur sent skjalið með því að skanna og senda það til okkar gegnum heimasíðuna.

Trúnaður – hver getur séð skjalið þitt?    

Þegar þú sendir okkur ósk um tilboð er textinn aðeins lesinn af verkefnisstjóra okkar og viðkomandi þýðanda. Skjalaþýðing.is heldur í heiðri trúnaði og skjal þitt er í öruggum höndum okkar. Ef ekki er hafist handa við þýðinguna, verður skjalinu eytt úr kerfum okkar.

Fáðu sendar ábendingar, ráð og tilboð

Viðskiptaþýðingar

Við önnumst þýðingar á mörgum mismunandi tegundum texta fyrir viðskiptavini úr viðskiptalífinu. Við þjónustum viðskiptavini í flestum greinum atvinnulífsins og úthlutum verkefnum til þýðenda með þekkingu á viðkomandi greinum. Þegar við tökum að okkur viðskiptaþýðingar hefur þekking á atvinnulífinu úrslitaáhrif um hvort þýðingin nýtist að fullu. Við höfum þess vegna innan okkar raða sérfræðinga um allan heim og sjáum einnig til þess að þú fáir hagstæðustu kjörin, þannig að þú fáir sem mest fyrir verðið sem þú greiðir. Ef þú ert með texta sem þú vilt láta þýða, mælum við með því að þú hafir samband við okkur í gegnum samskiptaformið sem hægt er að finna hér efst á síðunni.

Afhent – færð þýðinguna rafrænt og með pósti

Við póstsendum allar þýðingar á það heimilisfang sem óskað er eftir, hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Einnig er mögulegt að fá þýðinguna á rafrænu formi ef þú óskar eftir því.  

Hafðu samband

Hafðu samband í síma 644-0450, í tölvupóstfangið [email protected] eða með netspjalli. Afgreiðslutími okkar er frá kl. 8.00 til 17.00 alla virka daga. Við hlökkum til að heyra frá þér.

Greiðslukort eða reikningsviðskipti

Ef þú ákveður að fá aðstoð við franska þýðingu í gegnum Skjalaþýðing.is greiðir þú sem einstaklingur fyrir fram með greiðslukorti. Fyrirtæki og stofnanir fá sendan reikning.

Hver erum við?

Skjalaþýðing er þýðingastofa sem sérhæfir sig í löggiltum þýðingum, bæði fyrir einkaaðila og viðskiptavini úr atvinnulífinu. Skjalaþýðing á í samstarfi við marga þeirra löggiltu þýðenda sem hlotið hafa staðfestingu hjá sýslumanni, fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.

Skjalaþýðing.is
Kalkofnsvegur 2, 3. hæð
Hafnartorg, 101 Reykjavík
Ísland
644 0450
Kennitala: 560123-1670